27. apríl 2010
Í dag var stofnfundur Þekkingarseturs á Hvammstanga haldinn á Café Síróp. Við það tækifæri tók einn og annar til máls, undir styrkri stjórn Elínar Líndal, formanns Hagfélagsins. Þar ber fyrsta að telja Helgu Hinriksdóttur, verkefnisstjóra. Í máli hennar kom fram að eitt fyrsta verkefni Þekkingarsetursins er stofnsetning matvælasmiðju á Hvammstanga. Smiðjan hefur hlotið nafnið Matvælavirki - með skírskotun til hins sögufræga Borgarvirkis. Auk Þekkingarsetursins standa Matís ohf., Sláturhús KVH og Kjöthornið að Matvælavirkinu. Og þess má geta að Vaxtarsamningurinn styður við bæði Þekkingarsetrið sjálft og Matvælavirkisverkefnið.
Í kjölfar kynningar Helgu fylgdu innlegg frá Rögnvaldi Ólafssyni - forstöðumanni Stofnunar fræðasetra Háskóla Íslands, Hrafnhildi Ýri Víglundsdóttur framkvæmdastjóra Selaseturs Íslands, Þorsteini Sæmundssyni forstöðumanni Náttúrustofu Norðurlands vestra, Skúla Skúlasyni Hólarektor, Magnúsi Jónssyni sláturhússtjóra SKVH og Sigurði Guðjónssyni forstjóra Veiðimálastofnunar.
Að erindunum loknum rituðu fulltrúar stofnaðila undir samstarfsyfirlýsingu, en alls standa 17 fyrirtæki, stofnanir og félög að Þekkingarsetrinu. Auk áðurtalinna er þar um að ræða Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Farskólann, SSNV, Húnaþing vestra, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands , Forsvar ehf. og Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda.
Við óskum Vestur-Húnvetningum og öðrum aðstandendum til hamingju með framtakið!
