VNV

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Fréttir

Fréttir af verkefnum

5. september 2010

Nú eru rétt tvö ár liðin frá fyrstu úthlutun úr Vaxtarsamningi Norðurlands vestra. Á þessum tveimur árum hefur alls verið úthlutað 71 milljón króna til ýmissa verkefna og árangur margra þeirra er smátt og smátt að koma í ljós. Fæst eru verkefnin þess eðlis að þeim ljúki einn góðan veðurdag, en framlagi vaxtarsamningsins er allajafna ætlað að skila tilteknum áföngum. Nefna má tvo slíka, sem litið hafa dagsins ljós á síðstu vikum: Hinn 14. ágúst sl. var fyrsti áfanginn í fastri sýningu Söguseturs íslenska hestsins opnaður, að Hólum í Hjaltadal. Og nú nýverið var birt skýrsla um þjónustukönnun, sem var gerð meðal ferðamanna á Hveravöllum sumarið 2009. Skýrsluna má nálgast hér, en nánar er fjallað um hana á vef SSNV. 

 

Mat á vaxtarsamningum

30. júní 2010

Sem kunnugt er voru fimm vaxtarsamningar endurnýjaðir fyrr á árinu. Fram að þessu hafa vaxtarsamningarnir verið nokkuð hver með sínu sniði, en nú virðast menn hafa komist að samkomulagi um ákveðnar meginlínur í samningunum. Núgildandi Vaxtarsamningur Norðurlands vestra rennur út um næstu áramót en þess er að vænta að hann verði endurnýjaður á svipuðum nótum og hinir.

Nú nýlega birtist frétt á vef Byggðastofnunar, þess efnis að  iðaðarráðuneytið hafi falið stofnuninni að meta hvort samningarnir uppfylli skilyrði til að samningsbundin framlög verði greidd út. Mótaðar hafa verið verklagsreglur fyrir matið, og þær má nálgast hér.

 

Styrkveitingar

27. maí 2010

Stjórn Vaxtarsamnings Norðurlands vestra hefur fyrir nokkru síðan lokið umfjöllun um styrkumsóknir á þessu vori, og listinn yfir styrkþega verið birtur hér. Alls var veitt vilyrði fyrir 21 styrk, samtals að upphæð kr. 19.300.000. Í sumum tilvikum er um að ræða ný verkefni en einnig er nokkuð um framhaldsstyrki og í einstökum tilfellum er styrkveitingin háð skilyrðum um eflingu samstarfs og uppbyggingu klasa.

Haft hvefur verið samband við alla umsækjendur og þeim gerð grein fyrir niðurstöðum stjórnarinnar. Gerður er samningur um hvern einstakan styrk og nú þessa dagana er verið að ganga fá þeim, með ábyrgðarmönnum viðkomandi verkefna.

Næsti umsóknarfrestur verður væntanlega auglýstur í haust. Það verður um leið síðasti umsóknarfrestur í þennan vaxtarsamning, þar sem samningstíminn rennur út um næstu áramót. Vonir standa  þó til að Vaxtarsamningur Norðurlands vestra verði endurnýjaður þó með öðru sniði verði, sbr. tillögu að byggðaáætlun fyrir árin 2010 - 2013. Sem kunnugt er komu allnokkrir vaxtarsamningar til endurnýjunar sl. vetur, sjá hér.

 

 

Virkja - Norðvesturkonur

21. maí 2010

Við vekjum athygli á að nú hefur vefur tengslanetsins, Virkju - Norðvesturkvenna, verið opnaður, sjá hér.

Við óskum konum á Norðurlandi vestra til hamingju með hann, og hvetjum þær til að nýta sér þau tækifæri, sem þátttaka í tengslanetinu felur í sér.

 

Stofnun Þekkingarseturs

27. apríl 2010

Í dag var stofnfundur Þekkingarseturs á Hvammstanga haldinn á Café Síróp. Við það tækifæri tók einn og annar til máls, undir styrkri stjórn Elínar Líndal, formanns Hagfélagsins. Þar ber fyrsta að telja Helgu Hinriksdóttur, verkefnisstjóra. Í máli hennar kom fram að eitt fyrsta verkefni Þekkingarsetursins er stofnsetning matvælasmiðju á Hvammstanga. Smiðjan hefur hlotið nafnið Matvælavirki - með skírskotun til hins sögufræga Borgarvirkis. Auk Þekkingarsetursins standa Matís ohf., Sláturhús KVH og Kjöthornið að Matvælavirkinu. Og þess má geta að Vaxtarsamningurinn styður við bæði Þekkingarsetrið sjálft og Matvælavirkisverkefnið.

Í kjölfar kynningar Helgu fylgdu innlegg frá Rögnvaldi Ólafssyni - forstöðumanni Stofnunar fræðasetra Háskóla Íslands, Hrafnhildi Ýri Víglundsdóttur framkvæmdastjóra Selaseturs Íslands, Þorsteini Sæmundssyni forstöðumanni Náttúrustofu Norðurlands vestra, Skúla Skúlasyni Hólarektor, Magnúsi Jónssyni sláturhússtjóra SKVH og Sigurði Guðjónssyni forstjóra Veiðimálastofnunar.

Að erindunum loknum rituðu fulltrúar stofnaðila undir samstarfsyfirlýsingu, en alls standa 17 fyrirtæki, stofnanir og félög að Þekkingarsetrinu. Auk áðurtalinna er þar um að ræða Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Farskólann, SSNV, Húnaþing vestra, Nýsköpunarmiðstöð ÍslandsLandbúnaðarháskóla Íslands , Forsvar ehf. og Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda.

Við óskum Vestur-Húnvetningum og öðrum aðstandendum til hamingju með framtakið!

thekking_hvt

 
  • «
  •  Start 
  •  Prev 
  •  1 
  •  2 
  •  3 
  •  4 
  •  5 
  •  6 
  •  7 
  •  8 
  •  9 
  •  Next 
  •  End 
  • »


Page 1 of 9