VNV

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Fréttir

Málþing um Hveravelli

23. mars 2010

Opið málþing um málefni Hveravalla verður haldið í Húnaveri föstudaginn 9. apríl nk., klukkan 13:00 -17:00.

Leiðarstef málþingsins er þróun heilsársstarfsemi á Hveravöllum í átt til sjálfbærrar framtíðar með umhverfis- og náttúruvernd að leiðarljósi.

Drög að dagskrá:
13:00 Setning
13:10 Ávarp
13:20 Inngangur
13:30 Gildandi deiliskipulag
13:50 Staðan í náttúruverndar- og umhverfismálum
14:10 Stutt hlé
14:20 Stærðargráður í rekstri og afkomu
14:30 Starfsemin í dag
14:40 Viðhorf viðskiptavinanna
15:00 Svæðisskipulag hálendisins
15:20 Framtíðarsýn ferðaþjónustu á hálendinu
15:35 Kaffi
15:50 Hugarflug
16:50 Ávarp
17:00 Málþingi slitið

Að málþinginu standa Húnavatnshreppur, Hveravallafélagið ehf., Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Vaxtarsamningur Norðurlands vestra. Skipulagning og annar undirbúningur er í höndum This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it , atvinnuráðgjafa SSNV á Blönduósi.

Skráning hér, ekkert þátttökugjald!

 

Á slóð Vatnsdælasögu

15. mars 2010

Félagið Landnám Ingimundar gamla er  nokkurs konar klasi um verkefnið Á slóð Vatnsdælasögu, sem unnið hefur verið að frá árinu 2003. Félagið er aðili að Samtökum um sögutengda ferðaþjónustu. Markmið verkefnisins er

  • að gera Vatnsdælu skil í sínu eiginlega umhverfi, þannig að hún verði sýnileg og aðgengileg
  • að stuðla að varðveislu minja tengdum sögunni og
  • að kynna hana

Söguslóðin er í Vatnsdal og Þingi, og Klausturstofa á Þingeyrum gegnir mikilvægu hlutverki í verkefninu. Margir aðrir staðir koma við sögu, svo sem landnámsjörðin sjálf, Hof í Vatnsdal. Þegar er búið að merkja allnokkra sögustaði og nú nýlega kom út vandað sögukort með skýringum. Auk styrks frá Vaxtarsamningi Norðurlands vestra naut útgáfan fulltingis Menningarráðs Norðurlands vestra, Ferðamálastofu, Þjóðhátíðarsjóðs og Byggðastofnunar. Fornleifavernd ríkisins er líka dyggur stuðningsaðili verkefnisins, sem er hluti af The Heritage Maps Project, en það var styrkt af Leonardo da Vinci áætlun Evrópusambandsins. Kortið mun verða til sölu í upplýsingamiðstöðvum, bókaverslunum og víðar, en einnig má panta það á vef verkefnisins.

This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it annaðist útgáfu sögukortsins af hálfu Landnáms Ingimundar gamla og gefur hann nánari upplýsingar. Einnig má benda á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it .

Þess má geta að aðalfundur Landnáms Ingimundar gamla verður haldinn í veitingahúsinu Við árbakkann á Blönduósi þriðjudaginn 23. mars nk. kl. 20:00. Að venjulegum aðalfundarstörfum loknum verður hið nýja kort kynnt. Fundurinn er öllum opinn og eru nýir félagsmenn boðnir sérstaklega velkomnir.

 

Landbúnaður og ferðaþjónusta

11. mars 2010

Eins og menn muna, bauð Landsvirkjun Vaxtarsamningi Norðurlands vestra upp á samstarf um samráðsfund í Blöndustöð í haust, í tilefni Alþjóðlegrar athafnaviku. Yfirskrift þessa fundar var Ný sóknarfæri á Norðurlandi vestra - umhverfi og afurðir. Meðal þess sem gestum fundarins varð tíðrætt um, var ferðaþjónusta sem á einhvern hátt tengist landbúnaði.

Oft vill það verða þannig að á fundum er ályktað um eitt og annað, eða tillögur eru settar niður á blað, en svo gerist lítið í framhaldinu. Á fundinum var áréttað að þar sem Vaxtarsamningurinn væri aðili að honum, væri okkur bæði ljúft og skylt að styðja við frekari úrvinnslu, eftir því sem við ætti. Nú hefur ferðamáladeild Hólaskóla, Háskólans á Hólum, tekið upp þráðinn og boðar til málþings um landbúnaðartengda ferðaþjónustu, heima á Hólum þriðjudaginn 16. mars nk. Málþingið ber yfirskriftina Landbúnaður laðar og lokkar, og dagskráin er sem hér segir:

13.00               Hlín C. Mainka Jóhannesdóttir fjallar um  landbúnaðartengda ferðaþjónustu 

13.30               Berglind Viktorsdóttir frá Ferðaþjónustu bænda:  Horft til framtíðar með tengingu við fortíðina!

14.00               Stutt hlé

14.15               Berglind Hilmarsdóttir kynnir „Opinn landbúnað“  - Verkefni á vegum Bændasamtakanna

14.45               Hlédís Sveinsdóttir frumkvöðull fjallar um tækifæri í íslenskum landbúnaði 

15.15               Kaffihlé

15.30               Vinnusmiðjur: 3 - 4 hópar safna saman hugmyndum um nýsköpun í  landbúnaðartengdri ferðaþjónustu á
Norðurlandi vestra og vinna svo að áætlun um hvernig hrinda mætti þessum hugmyndum í framkvæmd.

16.30               Kaffi og kynning á hugmyndum og áætlunum

Málþingið er öllum opið og áhugasamir eru hvattir til að fjölmenna heim í Hóla á þriðjudaginn.
Aðgangur er ókeypis, en óskað er eftir að gestir skrái sig fyrir fram, á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it .

Frekari upplýsingar veitir Hlín C. Mainka Jóhannesdóttir, aðjúnkt við Hólaskóla (sama netfang).
Einnig má vekja athygli á viðtali við Hlín, í þættinum Vítt og breitt á Rás eitt nú í morgun.

 

Beitukóngur í Húnaflóa

1. mars 2010

Frá árinu 2008 hafa starfsmenn Sjávarlíftæknisetursins BioPol ehf. á Skagaströnd stundað rannsóknir á ástandi beitukóngs (Buccinum undatum) í Húnaflóa. Markmiðið er að komast að því hvort tegundin finnst í veiðanlegu magni í flóanum. Þetta felur í sér rannsóknir á ýmsum mikilvægum þáttum, svo sem stærð, aldri og heilsufari. Litið er til reynslu Breiðfirðinga í þessu sambandi, og auk samvinnu við þrautreynda sjósóknara hjá Vík ehf. á Skagaströnd, er verkefnið unnið í samstarfi við sjávarrannsóknasetrið Vör í Ólafsvík og útgerðarfyrirtækið Sægarp í Grundarfirði. Vaxtarsamningur Norðurlands vestra hefur lagt verkefninu lið frá upphafi.

Verði það niðurstaðan að ástæða sé til að hefja veiðar og vinnslu á beitukóngi í Húnaflóa, gæti það komið minni útgerðum á svæðinu mjög til góða, nú á tímum minnkaðra veiðiheimilda í öðrum tegundum.

Verkefnisstjóri er Halldór G. Ólafsson, framkvæmdastjóri BioPol ehf., og veitir hann allar nánari upplýsingar.

 

Fornverkaskólinn

22. febrúar 2010

Fornverkaskólinn er samstarfsverkefni Byggðasafns Skagfirðinga, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Hólaskóla, Háskólans á Hólum

Hjá Fornverkaskólanum er áhersla á handverkskennslu tengda byggingararfi Íslendinga. Áhersla er lögð á þekkingu á handverki við byggingu og þar með viðhald samkvæmt íslenskum byggingarhefðum, sérstaklega í torfi, grjóti og timbri. Sú þekking er forsenda þess að hægt sé að varðveita og viðhalda menningarminjum þjóðarinnar. Markhópur Fornverkaskólans er að stórum hluta landsbyggðarfólk þar sem mest af þeim minjum sem þarf að halda við eru út um  landið. Bæði er um að ræða fólk í byggingariðngreinum og ófaglært fólk í byggingariðnaði, auk land- og húseigenda, sem vilja læra réttu handtökin fyrir viðgerðir og viðhald sinna eigna. Þá er námið hagnýtt fyrir starfsfólk í ferðaþjónustu og aðra sem vilja nýta sér menningarlandslag og menningararf til atvinnusköpunar.

Markmið námskeiðahalds Fornverkaskólans eru þríþætt:

  • Að útskrifa nemendur sem eru færir um að taka á móti gestum sem vilja kynnast þeim menningararfi sem felst menningarlandslagi og mannvirkjum til sveita
  • Að útskrifa nemendur sem þekkja hefðbundin vinnubrögð við íslenskt byggingahandverk s.s. torfskurð og -hleðslu, grjóthleðslu, trésmíði og málmsmíði
  • Að útskrifa nemendur með hagnýta þekkingu á einkennum, þróun og varðveislu menningarlandslags íslenskra sveita

Byggðasafn Skagfirðinga sér um að safna og skrá heimildir um aðferðir og handverk á námskeiðum Fornverkaskólans og varðveitir þær upplýsingar. Einnig leggur það til  vettvang fyrir námskeið í gömlu byggingarhandverki að Suðurgötu 5 á Sauðárkróki og Tyrfingsstöðum á Kjálka. Fjölbrautaskóli Norðurlands Vestra leggur til sérhæfða kennsluaðstöðu í verknámshúsi sínu og annan búnað eftir þörfum, auk þess að varðveita gögn um kennslu Fornverkaskólans.  Háskólinn á Hólum leggur til kennsluaðstöðu og aðgang að þeim mannvirkjum Hólastaðar sem fela í sér fornan byggingararf.  Sérstök áhersla er lögð á þróun og uppbyggingu náms í menningararfsfræðum við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum.
Fulltrúar þessara þriggja stofnana mynda stjórn Fornverkaskólans sem mótar stefnu hans og áherslur í námskeiðahaldi sem og fjármögnun námskeiða.

Vaxtarsamningur Norðurlands vestra lagði kr. 1.000.000 í uppbyggingu skólans, af fjárveitingum ársins 2008.

Nánari upplýsingar um Fornverkaskólann veitir Bryndís Zoëga, This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

 


Page 3 of 9