VNV

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Fréttir

Opið fyrir umsóknir

16. febrúar 2010

Næsti umsóknarfrestur um styrki úr Vaxtarsamningi Norðurlands vestra rennur út 15. mars nk.
Sækja má um styrki til verkefna á sviði menntunar og rannsókna eða ferðaþjónustu og menningar.
Eingöngu koma til greina verkefni, sem eru unnin í samstarfi tveggja eða fleiri aðila.
Ekki er heimilt að veita styrki til fjárfestinga í fyrirtækjum eða til reksturs fyrirtækja eða opinberra stofnana,
auk þess sem stofnkostnaður er ekki styrkhæfur.
Styrkur getur að hámarki numið 60 % af heildarkostnaði við hvert einstakt verkefni.

Nánar um forgangsflokka verkefna:

Menntun og rannsóknir

Einkum koma til greina hagnýt rannsóknarverkefni sem tengjast

  • bættri nýtingu afurða úr landbúnaði og sjávarútvegi á Norðurlandi vestra,
    ekki síst með tilliti til sjálfbærni, umhverfisverndar og auðlindalíftækni
  • uppbyggingu þekkingar og eflingu þekkingarsetra á Norðurlandi vestra

Ferðaþjónusta og menning

Til greina koma verkefni er stuðla að eflingu ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra, einkum á sviði

  • sagnaarfsins
  • íslenska hestsins
  • náttúru og umhverfis
  • handverks

Vaxtarsamningi Norðurlands vestra er ætlað að stuðla að uppbyggingu klasa á áðurtöldum sviðum.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér þau verkefni, sem þegar hafa hlotið styrki á vegum samningsins,
með þéttingu samstarfsnets fyrir augum.

Umsóknareyðublöð er að finna hér.

Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri, í síma 455 7931, netfang This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

 

Bleikjueldi í smáum stíl

15. febrúar 2010

Í Verinu – Vísindagörðum á Sauðárkróki er unnið að rannsóknum og þróun á möguleikum bleikjueldis í smáum stíl, á bújörðum í Skagafirði. Að mati aðstandenda verkefnisins liggja tækifæri til bleikjueldis sem hliðarbúgreinar víða, en frumskilyrðin eru aðgangur að ódýrri orku og góðu vatni. Hugmyndin er sú að nýta litlar eldisstöðvar á bændabýlum til matfiskeldis þar sem bóndinn tekur við stórseiðum og elur þau í sláturstærð. Hrognakreisting og frumfóðrun færu fram í sérhæfðum eldisstöðvum og einnig yrði unnið að slátrun og markaðssetningu á sameiginlegum grunni. Ef vel tekst til getur verkefnið þannig í senn styrkt starfsemi stærri fiskeldisstöðva, sem væru nokkurs konar móðurstöðvar, og eflt atvinnu og búsetu á bújörðum en eins og kunnugt er, er algengt að bændur þurfi að sækja vinnu út fyrir búin til að drýgja tekjur sínar.

Að verkefninu standa Verið – Vísindagarðar, Hólaskóli – Háskólinn á Hólum, Skagafjarðarveitur ehf. og Hólalax hf., auk þess sem auglýst var eftir áhugasömum landeigendum til þátttöku. Þess má geta að Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Hólaskóla – Háskólans á Hólum hefur forgöngu um ýmis önnur rannsóknaverkefni tengd bleikjueldi, meðal annars í samvinnu við Matís ohf., sem nú hefur opnað starfsstöð í Verinu – Vísindagörðum.

Í desember 2008 var boðað til kynningarfundar í Verinu, þar sem verkefnið var kynnt fyrir áhugasömum bændum og í framhaldi af því hófust rannsóknir á aðstæðum á fimm jörðum vítt og breitt um héraðið. Til að byrja með voru það einkum mælingar á rennsli og hitastigi vatns. Í framhaldi af þessum frumathugunum hafa síðan verið lagðar fram nokkrar hugmyndir um litlar eldisstöðvar og gerðar grófar kostnaðaráætlanir um þær. Þeim hluta verkefnisins sem Vaxtarsamningur Norðurlands vestra hefur styrkt fram að þessu er nú lokið, en áfram er unnið að frekari þróun þess. Allar frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Versins – Vísindagarða, Gísli Svan Einarsson.

 

Hýrusporið

8. febrúar 2010

Á næstu vikum er ætlunin að nota vef Vaxtarsamnings Norðurlands vestra til að vekja athygli á verkefnum þeim, er hann hefur lagt lið frá því að hann tók til starfa um mitt ár 2008. Fyrsta verkefnið sem við kynnum hér nefnist Hýruspor.

Hýrusporið er heiti samtaka um hestatengda þjónustu á Norðurlandi vestra. Þau voru stofnuð snemma árs 2009 og frá upphafi hefur verið horft á þau sem klasa rekstraraðila er byggja afkomu sína að einhverju leyti á íslenska hestinum, annað hvort beint eða með afleiddri þjónustu. Þarna geta t. d. bæði hrossaræktandinn og hótelhaldarinn  átt samleið því  báðir eiga þeirra hagsmuna að gæta að laða áhugafólk um íslenska hestinn inn á svæðið. Samtökin eru opin öllum er telja sig eiga samleið með þeim og reka sína starfsemi á Norðurlandi vestra.

Norðurland vestra hefur lengi verið þekkt fyrir hross og hestamennsku og til að mynda eru allar helstu stóðréttir landsins annað hvort í Skagafirði eða Húnaþingi. Héðan koma margir af þekktustu hrossastofnunum, og hér voru fyrstu hrossaræktarfélögin stofnuð. Víða um Norðurland vestra hafa verið reistar veglegar reiðhallir og ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi Hólaskóla, háskólans á Hólum í tengslum við hestamennskuna. Auk kennslu tengdri bæði reiðmennsku og ferðaþjónustu, er þar heimfrá lögð stund á ýmiss konar rannsóknir tengdar íslenska hestinum og þar er meðal annars að finna Sögusetur íslenska hestsins og aðsetur dýralæknis hrossasjúkdóma. Landsmót hestamanna verður haldið á Vindheimamelum í Skagafirði sumarið 2010 og svona mætti áfram telja.

Helstu markmiðin með klasanum eru:

  • Að fjölga ferðamönnum sem sækja hestatengda ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra og efla um leið afleidda þjónustu (gistingu, veitingar o. s. frv.)
  • Að fjölga störfum tengdum íslenska hestinum, á Norðurlandi vestra
  • Að auka samstöðu meðal aðila í hestatengdri ferðaþjónustu sem og annarri hestatengdri atvinnustarfsemi á Norðurlandi vestra
  • Að auka gæði hestatengdrar ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra
  • Að efla ímynd Norðurlands vestra, með tilliti til íslenska hestsins
  • Að fjölga möguleikum/auka fjölbreytni í hestatengdri ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra, m. a. með það fyrir augum að lengja hið hefðbundna ferðamannatímabil

Meðal fyrstu verkefna klasans var að koma sér upp sameiginlegum vef sem er ætlað að koma samtökunum á framfæri, og þá um leið því sem félagar bjóða falt. Enn fremur gegnir vefurinn því hlutverki að vera nokkurs konar regnhlíf yfir heimasíðum Hýrusporsfélaga. Vefinn er að finna á www.icehorse.is.

Einnig hafa verið stigin fyrstu skrefin í sameiginlegri markaðssetningu, með því að bjóða upp á samsettan ferðapakka í tengslum við Ísmót á Svínavatni í mars 2010. Ferðaþjónusta bænda hefur tekið að sér sölu og aðra umsýslu með þessum ferðum, enda er Hýrusporið ekki enn komið á þann rekspöl að tímabært sé að sækja um ferðaskrifstofuleyfi, hvað sem síðar kann að verða. Ferðirnar eru fyrst og fremst markaðssettar á vefnum og bera yfirskriftina Events & Breeders.

Fyrsti formaður Hýrusporsins er This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it í Varmahlíð. Félagar eru þegar orðnir yfir 20 talsins, af öllu Norðurlandi vestra.

Vaxtarsamningurinn hefur styrkt verkefnið, bæði með fjármunum og sérfræðiframlögum, auk þess sem framkvæmdastjóri VNV hefur unnið með samtökunum frá upphafi.

 

Stjórnarfundur

4. febrúar 2010

Fyrsti stjórnarfundur í Vaxtarsamningi Norðurlands vestra á þessu ári moltavar haldinn á Sauðárkóki í morgun. Fundirnir eru haldnir reglulega, hér og hvar í Húnaþingi eða Skagafirði, og stjórnarmenn nýta gjarna tækifærið til að kynna sér einhverja þætti atvinnulífsins á viðkomandi stað, ekki síst þau verkefni sem notið hafa stuðnings úr Vaxtarsamningnum.

Að þessu sinni var Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga heimsótt. Þar hefur Vaxtarsamningurinn komið að verkefni um bætta nýtingu hliðarafurða úr slátrun og kjötvinnslu. Verkefninu vindur vel fram, og mun Ágúst Andrésson framkvæmdastjóri, væntanlega kynna það á Fræðaþingi landbúnaðarins í Reykjavík nú síðar í mánuðinum.

Ágúst kynnti stjórnarmönnum stöðu verkefnisins og næstu skref, en síðan var boðið upp á kynnisferð í fóðurstöðina og moltugerðina á Gránumóum, eins og meðfylgandi mynd Péturs Friðjónssonar ber vott um.

Á fundinum var ákveðið að næsti umsóknarfrestur um fjárstuðning úr Vaxtarsamningi Norðurlands vestra renni út hinn 15. mars nk. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it ef einhverjar spurningar vakna.

 

Fjölsóttur fundur

29. janúar 2010

Yfir fjörutíu manns sóttu fundinn á Hótel Blönduósi í gær. Fundargestir, sem komu vítt og breitt af Norðurlandi vestra, gerðu góðan róm að erindum framsögumanna. Það voru þeir Árni Snæbjörnsson og Guðmundur J. Guðmundsson sem ræddu um samtökin Beint frá býli, Áskell Þórisson sem kynnti Litlu búðirnar og endurmenntunarmöguleika við Landbúnaðarháskóla Íslands, og Guðrún Brynleifsdóttir sem fjallaði um Matarkistuna Skagafjörð. Þrátt fyrir að fundartíminn skaraðist að nokkur við leiktíma Strákanna okkar var það töluverður hópur sem notaði tækifærið eftir fundinn til að ræða beint við framsögumennina um hugsanlega þátttöku í þessum verkefnum og munu t. d. um 9 % fundarmanna hafa gengið til liðs við Beint frá býli.

 


Page 4 of 9