VNV

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Fréttir

Handverk og heima(n)sala

15. janúar 2010

Vaxtarsamningur Norðurlands vestra, SSNV atvinnuþróun og Matarkistan Skagafjörður boða til kynningarfundar
um möguleika í vefverslun og beinni sölu á handverki og öðrum afurðum, sem og í matarferðaþjónustu.

Fundurinn verður haldinn á Hótel Blönduósi, fimmtudaginn 28. janúar nk. og hefst kl. 13:00.

Dagskrá:

Fundarsetning

Beint frá býli, félag bænda sem stunda eða hyggjast stunda sölu afurða beint frá býli.
Árni Snæbjörnsson, verkefnisstjóri BFB kynnir félagið og starfsemi þess.
Nánar: www.beintfrabyli.is .

Litlu búðirnar, vefverslun með íslenskt handverk og náttúruvörur.
Áskell Þórisson, umsjónarmaður og hugmyndasmiður verkefnisins kynnir vefinn,
möguleikana sem í honum felast og forsendur fyrir þátttöku.
Nánar: www.litlubudirnar.is .

Matarkistan Skagafjörður, þróunarverkefni í matarferðaþjónustu.
Guðrún Brynleifsdóttir, verkefnisstjóri kynnir verkefnið.

Beint frá býli – nýr söluvefur félagsins.
Guðmundur J. Guðmundsson, stjórnarmaður í BFB, kynnir nýjan söluvef félagsins.

Endurmenntunarmöguleikar við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.
Áskell Þórisson, útgáfu- og kynningarstjóri LbhÍ, segir stuttlega frá þeim námskeiðum
sem skólinn býður upp á og tengjast þessu sviði.
Nánar: www.lbhi.is .

Umræður og fyrirspurnir

Fundarstjóri Stefán Haraldsson, atvinnuráðgjafi SSNV

Allt áhugafólk á Norðurlandi vestra velkomið.

 

Fréttir af starfi VNV

15. janúar 2010

Öðru hvoru má lesa fréttir af starfi Vaxtarsamningsins, á hinum ýmsu netmiðlum.

Til dæmis má benda á frétt, sem hefur birst víða og er af undirskrift samnings við Hólaskóla - háskólann á Hólum, um stuðning á rannsókn á efnahagslegu umfangi, mikilvægi og eðli hestamennsku á Norðurlandi vestra. Þessa frétt má nálgast hér. Og hér má hlusta á viðtal fréttamanns RÚVAK við Ingibjörgu Sigurðardóttur, sem heldur utan um þetta verkefni.

Um fundinn sem haldinn var í Blöndustöð í Athafnavikunni, í samstarfi við Landsvirkjun og ráðgjafastofuna Ildi , er fjallað á vef Global Enterpreneurship Week, sjá hér.

 

Hýruspor

4. desember 2009

Eitt af þeim verkefnum, sem Vaxtarsamningur Norðurlands vestra leggur lið, er Hýruspor - samtök um hestatengda þjónustu á Norðurlandi vestra. Markmið Hýrusporsins er að efla samstöðu og samvinnu þeirra sem búa og starfa á svæðinu og byggja afkomu sína að meira eða minna leyti á íslenska hestinum.

Nú hefur vefur verkefnisins litið dagsins ljós. Fyrsta útgáfa hans er einvörðungu á ensku, og getur að líta á slóðinni www.icehorse.is .

 

Fundur í Blöndustöð

30. nóvember 2009

Nú hefur samantekt um fundinn í Blöndustöð verið sett hér á vefinn.

Margt af því sem þar kemur fram, er eitthvað sem brennur á fólki og er í umræðunni víðar, og jafnvel beinlínis unnið að sumu. Vonandi verður þessi fundur liður í að ýta einhverju af því skrefinu lengra.

Sjá nánar hér, á vef Landsvirkjunar.

 

Athafnavikan

25. nóvember 2009

Það þarf þrautseigju og þolinmæði sagði Ásdís Guðmundsdóttir, starfsmaður Atvinnumála kvenna, á þeim þremur fundum sem stoðkerfið á Norðurlandi vestra stóð fyrir undir yfirskriftinni: Norðurljós – kveikjum á perunni.

Við höfum áður sagt frá þessum fundum, sem voru liður í alþjóðlegri athafnaviku en tilgangurinn var m.a. að benda á að allir geta lagt hönd á plóg við að færa fram eitthvað jákvætt til samfélagsins. Einnig var markmiðið að koma af stað öflugri hugmyndavinnu þar sem unnið væri með tækifæri og möguleika á svæðinu.

Dagskrá fundanna var á þann veg að fyrst var kynning á þeim þáttum sem einkenna frumkvöðla og þar voru nefnd orð eins og - eldmóður – orka – trú á sjálfum sér og jákvæð hugsun. Eftir það var þátttakendum skipt í hópa þar sem unnið var með þær hugmyndir sem fram komu.

Reynslusaga frumkvöðuls var næst á dagskrá og þar fræddu Kristján Blöndal, Kjalfelli á Blönduósi, Jóhann Albertsson, Sveitasetrinu Gauksmýri í Húnaþingi vestra og Hanna Þrúður Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Dýrakotsnammis á Sauðárkróki, viðstadda um reynslu þeirra af því að stofna og reka fyrirtæki.  

Í lok fundar kynntu fundarboðendur þá þjónustu og möguleika sem felast í þeirra störfum en allir sinna þeir aðstoð við frumkvöðla á Norðurlandi vestra og aðra þá sem vilja vinna með sínar hugmyndir. Alls mættu um 40 manns á þessa fundi sem haldnir voru á Sauðárkróki, Blönduósi og Hvammstanga. Að fundunum stóðu Byggðastofnun, Menningarráð Norðurlands Vestra, Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Impra, Samtök Sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Vaxtarsamningur Norðurlands vestra, Vinnumálastofnun - Atvinnumál kvenna og Virkja - Norðvesturkonur.

Vaxtarsamningurinn kom einnig að fundinum Umhverfi og afurðir, sem haldinn var í boði Landsvirkjunar, í Blöndustöð. Þar ræddu um 20 manns ýmsar hugmyndir sem til framfara mættu vera á Norðurlandi vestra og tengdust yfirskrift fundarins. Sigurborg Kr. Hannesdóttir, fundarstjóri og starfsmaður Ildis, vinnur nú úr niðurstöðum og þegar er farið að huga að eftirfylgni við eitthvað af því, sem þarna var stungið upp á. Umræðan á fundinum var framhald á gerjun og vinnu sem hefur verið að eiga sér stað á Norðurlandi vestra og styrkti trúna á að halda í þessa átt. Þannig verði „varan“ Norðurland vestra þróuð enn frekar og markaðssett. Áherslan verði á sjálfbærni og atvinnusköpun.

Sjá nánar frétt á vef Landsvirkjunar.

 


Page 5 of 9