19. nóvember 2009
Í tilefni Athafnaviku bauð Landsvirkjun Vaxtarsamningi Norðurlands vestra til samstarfs um fund í Blöndustöð, en sem kunnugt er, er Landsvirkjun einn af styrktaraðilum samningsins. Fundurinn verður haldinn í dag, fimmtudaginn 19. nóvember í og yfirskriftin er „Ný sóknarfæri á Norðurlandi vestra - umhverfi og afurðir".
Til fundarins er boðið fjölmörgum einstaklingum, vítt og breitt af Norðurlandi vestra, sem starfa við eða hafa þekkingu og áhuga á viðfangsefninu. Rætt verður um þau sóknarfæri sem felast í umhverfisvænum áherslum í atvinnu- og menningarlífi í fjórðungnum. Sem dæmi ná nefna nýja og/eða betri nýtingu afurða, jafnvægi milli verndunar og aðgengis náttúruperla, fræðslu og rannsóknir.
Fundinum er ætlað að skapa umræðu og gerjun og tengja saman fólk sem hefur áhuga á þessum málum og vill eiga þátt í að móta hugmyndir og gera að veruleika.
Landsvirkjun hefur markað sér stefnu um samfélagsábyrgð og vill taka þátt í verkefnum sem leitt geta til jákvæðrar þróunar á þeim stöðum þar sem fyrirtækið er með starfsemi. Samkvæmt upplýsingum frá heimamönnum er víða á Norðurlandi vestra verið að skoða sóknarfæri sem felast í umhverfisvænum áherslum varðandi afurðir og margt fleira. Fundurinn er haldinn til að leiða saman aðila af öllum svæðum fjórðungsins og hefur verið boðið til hans eins mörgum þátttakendum og húsrúm leyfir.
Umsjón með fundinum hefur Sigurborg Kr. Hannesdóttir, hjá ILDI, ráðgjöf og þjónustu.
Væntingar eru þær að þetta verði fyrsta skrefið í samstarfi um markvissa sókn á Norðurlandi vestra þar sem byggt verður á auðlindum svæðisins, umhverfi og afurðum.


