VNV

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Fréttir

Handverk á Norðurlandi vestra

4. maí 2009

Vaxtarsamningur Norðurlands vestra boðar til fundar um handverk á Norðurlandi vestra, kl. 20:00 þriðjudaginn 5. maí. Fundarstaður er Textílsetur Íslands í Kvennaskólanum á Blönduósi.

Tilefnið er að handverksfólk á svæðinu hefur sýnt áhuga á fyrirgreiðslu af hálfu Vaxtarsamningsins í tengslum við ýmiss konar handverkstengd verkefni. Það er hlutverk samningsins að leiða saman fólk með sambærilegar eða samræmanlegar hugmyndir og því er boðað til þessa fundar. Honum er fyrst og fremst ætlað að skapa grundvöll til umræðna, þar sem fundargestir velti fyrir sér spurningunni um hvort og þá hvernig efla megi samstarf handverksfólks á Norðurlandi vestra.

Sérstakur gestur fundarins er Dr. Guðrún Helgadóttir, prófessor við ferðamáladeild Hólaskóla - Háskólann á Hólum.

Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um málefnið, en óskað er eftir að væntanlegir fundargestir láti vita af sér fyrirfram ( This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it ) .

 

Rannsóknadeild Selaseturs Íslands

24. apríl 2009

Síðasta vetrardag var rannsóknadeild Selaseturs Íslands á Hvammstanga opnuð. Við það tækifæri voru undirritaðir samstarfssamningar setursins við Veiðimálastofnun og Hólaskóla - Háskólann á Hólum, en starfsmenn frá báðum stofnunum hafa nú aðsetur í setrinu. Starfsmaður Veiðimálastofnunar er Sandra Magdalena Granquist og leggur hún stund á selarannsóknir. Starfsmaður Hólaskóla - Háskólans á Hólum er Per Åke Nilsson, sem auk kennslu við skólann mun sinna rannsóknum á sviði náttúrutengdrar ferðaþjónustu.

Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri var sérstakur gestur opnunarinnar og sagði hún að sem líffræðingur væri hún mjög glöð að sjá loks samþættingu ferðamálafræði og náttúruvísinda í verki, sem hún teldi nauðsynlegt hér á landi þar sem náttúran er helsta aðdráttaraflið.

Að formlegri undirskrift lokinni var gestum boðið upp á kynningu á alþjóðlega samstarfsverkefninu The Wild North, sem verkstýrt er frá Selasetrinu. Þetta verkefni er styrkt af Vaxtarsamningi Norðurlands vestra, sem einnig kom að undirbúningi rannsóknadeildarinnar á sl. ári.

 

Þekkingarþing

17. apríl 2009

Í Vaxtarsamningi Norðurlands vestra er meðal annars lögð áhersla á menntun og rannsóknir, og sýn stjórnar grundvallast að töluverðu leyti á þessari áherslu. Á Norðurlandi vestra er lögð stund á ýmiss konar rannsóknir, en þær fara ekki alltaf hátt og við teljum fulla ástæðu til að leggja okkar af mörkum til vekja athygli á því fjölbreytta rannsókna- og fræðastarfi, sem hér fer fram.

Við höfum því ákveðið að boða til Þekkingarþings Norðurlands vestra, þriðjudaginn 19. maí nk., í Fellsborg á Skagaströnd. Þar höfum við hugsað okkur að setja saman dagskrá sem byggist að mestu leyti á stuttum erindum fræðimanna og fulltrúa rannsóknarstofnana/þekkingarsetra á svæðinu. Á ráðstefnunni gefist þeim tækifæri til að kynna störf sín fyrir öllum áhugasömum og ekki síst hver fyrir öðrum.

Þeim fræðimönnum á Norðurlandi vestra, sem kynnu að hafa áhuga á að kynna rannsóknir sínar á Þekkingarþingi Norðurlands vestra 2009, er bent á að hafa samband við framkvæmdastjóra Vaxtarsamningsins, ekki seinna en annan dag í sumri.

Upplýsingar um dagskrá og skráningu annarra gesta en fyrirlesara verða birtar hér á vefnum er nær dregur. Þingið verður öllum opið, en óskað eftir að væntanlegir gestir skrái sig.

 

Úthlutun

7. apríl 2009

Á stjórnarfundi Vaxtarsamnings Norðurlands vestra, fimmtudaginn 2. apríl sl., var fjallað um umsóknir. Alls höfðu borist 27 umsóknir um styrki, samtals að upphæð kr. 54.682.920.

Stjórnin ákvað að veita framhaldsstyrk til tveggja verkefna, annars vegar til BioPol sjávarlíftækniseturs á Skagaströnd vegna frumathugunar á líffræði og útbreiðslu beitukóngs á Húnaflóa, og hins vegar til starfsstöðvar Matís í Verinu á Sauðárkróki, vegna nýtingar ostamysu í heilsutengd matvæli.

Veittur var styrkur til þriggja nýrra verkefna. Umhverfið þitt ses., hlaut styrk til forathugunar á tveimur verkefnum - annars vegar lífdísilframleiðslu í Skagafirði og hins vegar framleiðslu undirburðar fyrir hross, úr úrgangshálmi og -pappír. Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði hlaut styrk vegna verkefnisins Á Sturlungaslóð í Skagafirði.

Afgreiðslu fimm umsókna var frestað, en öðrum hafnað að þessu sinni.

 

Evrópusamstarf

12. mars 2009

Byggðastofnun og ráðuneyti menntamála og iðnaðar (í samstarfi við vaxtarsamningana) gangast þessa dagana fyrir kynningum á möguleikum í Evrópusamstarfi. Kynningarnar eru haldnar á nokkurm stöðum um landið, og miðvikudaginn 18. mars er komið að Norðurlandi vestra. Þá munu fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa standa fyrir kynningu á styrkja- og samstarfsmöguleikum á vegum evrópskra áætlana.

Kynningin fer fram í bóknámshúsi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, kl. 10 - 13. Þetta er kjörið tækifæri fyrir einstaklinga, skóla, fyrirtæki, stofnanir og samtök að kynna sér möguleika til samstarfs á flestum sviðum menntunar, menningar og atvinnulífs.

Dagskráin hefst með sameiginlegum kynningum áætlananna, og sagt verður frá nokkrum verkefnum hér af Norðurlandi vestra. Að því búnu munu fulltrúar einstakra áætlana verða til viðtals, allt fram til kl. 13.

Við sama tækifæri munu fulltrúar eftirtalinna aðila innan stoðkerfisins kynna starfsemi sinna stofnana stuttlega, og þá möguleika sem í henni felast:

  • Impra á Nýsköpunarmiðstöð
  • Vinnumálastofnun
  • SSNV atvinnuþróun
  • Menningarráð Norðurlands vestra
  • Vaxtarsamningur Norðurlands vestra.

Allir velkomnir!

 

 


Page 8 of 9