VNV

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size
Fréttir

Að sýningu lokinni

26. apríl 2010

Vaxtarsamningurinn tók þátt í atvinnulífs- og menningarsýningunni á Sauðárkróki um helgina, og deildi þar bás með SSNV atvinnuþróun og Menningarráði. Sýningin tókst með miklum ágætum og gerðu gestir góðan róm að henni.

Margir litu til okkar í básinn, þar sem þeim gafst kostur á að taka þátt í léttum spurningaleik um starfsemina. Sex heppnir hlutu vinninga sem allir innihéldu vörur eða gjafabréf fyrir tiltekinni þjónustu á Norðurlandi vestra.

Það var svo kl. 15 í gær að dregið var úr réttum lausnum og samband haft við vinningshafana, sem við vonum að njóti vel.

Takk fyrir komuna!

 

Lífsins gæði og gleði

22. apríl 2010

Okkur langar til að vekja athygli á atvinnulífs- og menningarsýningunni Skagafjörður - Lífsins gæði og gleði, sem verður haldin á Sauðárkróki nú um helgina, í aðdraganda Sæluviku. Gefið hefur verið út sérstakt kynningarblað um Skagafjörð, af þessu tilefni.
Sýningin sjálf verður haldin í íþróttahúsinu og þar munu um 80 aðilar kynna vörur sínar og þjónustu.
Þar á meðal eru nokkrir af styrkþegum Vaxtarsamningsins og samningurinn sjálfur verður kynntur í bás SSNV.

Samhliða sýningunni verða haldnar málstofur um hin ýmsu málefni. Þær verða haldnar í húsnæði Árskóla og
hér er að finna dagskrá málstofanna.

Við óskum Sveitarfélaginu Skagafirði til hamingju með framtakið og biðjum Skagfirðingum og gestum þeirra góðrar skemmtunar á sýningunni sem og á Sæluvikunni.

Gleðilegt sumar!

 

Dagur húnvetnskrar náttúru

6. apríl 2010

Laugardaginn 10. apríl næstkomandi bjóða  Náttúrustofa Norðurlands vestra og Selasetur Íslands
til fræðsludags um náttúrufar Húnavatnssýslna, að Gauksmýri í Línakradal.

Formleg dagskrá fræðsludagsins hefst kl. 9:30 og lýkur kl. 17:00.
Að lokinni setningarræðu Skúla Þórðarsonar, sveitarstjóra Húnaþings vestra,
mun Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra ávarpa gesti.
Síðan hefst fyrirlestraröð þar sem drepið verður á eitt og annað tengt náttúrufari í Húnaþingi.
Fyrirlestrarnir verða stuttir (15 mín. hver).Kaffisopi verður á boðstólum, og súpa veitt í hádegishléi.

Sjá dagskrá hér.

Að fyrirlestrahaldi loknu er ráðstefnugestum boðið að þiggja veitingar í húsnæði Selaseturs Íslands,  að Brekkugötu 2 á Hvammstanga, í tilefni fimm ára afmælis Selasetursins og tíu ára afmælis Náttúrustofu Norðurlands vestra.

Allir eru velkomnir á fræðsludaginn, en nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram, í síðasta lagi miðvikudaginn 7. apríl nk. Það má gera með því að senda tilkynningu á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it eða hringja í síma 453-7999.

Við framkvæmd fræðsludagsins njóta Náttúrustofan og Selasetrið stuðnings sveitarfélaga í Húnavatnssýslum, Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Vörumiðlunar, Léttitækni, Sláturhúss KVH og Vaxtarsamnings Norðurlands vestra.

 

 

Málþingi frestað

25. mars 2010

Af óviðráðanlegum ástæðum hefur áður auglýstu málþingi um málefni Hveravalla verið frestað um óákveðinn tíma.

Nánari upplýsingar verða birtar hér og á vef SSNV, þegar þær liggja fyrir.

 

Landbúnaður laðar og lokkar

23. mars 2010

Málþingið, sem haldið var á Hólum þann 16. mars sl. og snerist um landbúnaðartengda ferðaþjónustu, var vel sótt og tókst með ágætum. Nánar má lesa um það hér á vef Hólaskóla - Háskólans á Hólum.

 


Page 2 of 9