VNV

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size

Markmið og leiðir

E-mail

Markmið vaxtarsamningsins:
Að efla atvinnulíf og byggðaþróun á Norðurlandi vestra með því að byggja á þeim styrkleikum sem svæðið býr yfir til frekari vaxtar.

Leiðir:
Efling nýsköpunar og vaxtar fyrirtækja og stofnana á svæðinu í gegnum klasasamstarf, með áherslu á tvö svið:

  • Menntun og rannsóknir þar sem áhersla verður m.a. lögð á auðlindalíftækni og uppbyggingu þekkingarsetra sem þjóna muni öllu svæðinu.
  • Menning og ferðaþjónusta.

Samningurinn er til þriggja ára og er iðnaðarráðuneytið  skuldbundið til að greiða árlega 30 milljónir króna til verkefnisins, og þannig samtals kr. 90 milljónir á samningstímanum.

Samningnum fylgir viðaukasamningur  fyrirtækja og stofnana um aðkomu að verkefninu, í formi fjármagns, sérfræðivinnu eða aðstöðu. 17  fyrirtæki og stofnanir eru aðilar að samningnum og nema framlög þeirra samtals um 56,4 milljónum króna á samningstímanum.