Stjórn Vaxtarsamnings Norðurlands vestra hefur þá sýn að árið 2020 verði
- ferðaþjónusta á Norðurlandi vestra þekkt fyrir öfluga samvinnu, góða þjónustu og fjölbreytt framboð afþreyingar árið um kring, með áherslu á
hestatengda ferðaþjónustu
sögutengda ferðaþjónustu
ferðaþjónustu tengda útivist og náttúru
handverk
- til staðar á Norðurlandi vestra öflugur klasi þekkingarsetra er tengi saman atvinnulíf og rannsóknir á sviði bættrar nýtingar afurða úr landbúnaði og sjávarútvegi, með sérstaka áherslu á auðlindalíftækni þar sem við á.
- til staðar á Norðurlandi vestra klasi rannsóknarsetra er tengist ferðaþjónustu og styrki þannig atvinnugreinina jafnframt því að fjölga möguleikum í rannsóknatengdu námi.
- Norðurland vestra eftirsóknarverður búsetukostur m. t. t. fjölbreyttra atvinnutækifæra og afþreyingar.
- fjölbreyttir möguleikar til rannsóknatengds framhaldsnáms í boði á Norðurlandi vestra.
Stjórn Vaxtarsamnings Norðurlands vestra leggur áherslu á
- að uppbygging klasa verði neðan frá, það er að byrjað sé með smærri einingar, sem smátt og smátt tengist saman í öflugt samstarf.
- að hlutur Hólaskóla - Háskólans á Hólum verði ekki fyrir borð borinn og að hann tengist sérhverju af áherslusviðum samningsins á viðeigandi hátt.


