22. apríl 2010
Okkur langar til að vekja athygli á atvinnulífs- og menningarsýningunni Skagafjörður - Lífsins gæði og gleði, sem verður haldin á Sauðárkróki nú um helgina, í aðdraganda Sæluviku. Gefið hefur verið út sérstakt kynningarblað um Skagafjörð, af þessu tilefni.
Sýningin sjálf verður haldin í íþróttahúsinu og þar munu um 80 aðilar kynna vörur sínar og þjónustu.
Þar á meðal eru nokkrir af styrkþegum Vaxtarsamningsins og samningurinn sjálfur verður kynntur í bás SSNV.
Samhliða sýningunni verða haldnar málstofur um hin ýmsu málefni. Þær verða haldnar í húsnæði Árskóla og
hér er að finna dagskrá málstofanna.
Við óskum Sveitarfélaginu Skagafirði til hamingju með framtakið og biðjum Skagfirðingum og gestum þeirra góðrar skemmtunar á sýningunni sem og á Sæluvikunni.
Gleðilegt sumar!


