VNV

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size

Verkefni

Vaxtarsamningur Norðurlands vestra styrkir margvísleg verkefni sem öll eiga það sammerkt að geta á einhvern hátt komið íbúum í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum til góða. Við val á verkefnum er fjölgun starfa og/eða aukin þekking höfð að leiðarljósi. Svo sem fram kemur annars staðar hér á vefnum eru áhersluflokkarnir tveir: Annars vegar menntun og rannsóknir og hins vegar menning og ferðaþjónusta.

aherslusvid

Talað er um uppbyggingu klasa í hvorum áhersluflokki fyrir sig. Það er gert með því að styðja við samstarfsverkefni sem falla undir þessar skilgreiningar, með það að leiðarljósi að smátt og smátt myndist stærri klasar og þannig byggist upp þéttriðið net fyrirtækja og stofnana í skyldri eða tengdri starfsemi.

Í samningnum er sérstaklega kveðið á um stuðning við uppbyggingu þekkingarsetra sem þjóni öllu svæðinu. Í stórum dráttum má segja að þeim rannsóknaverkefnum er VNV styður við megi skipta í tvennt: Annars vegar hagnýtum rannsóknum er styðja á einhvern hátt við grunnatvinnuvegina landbúnað og sjávarútveg, og hins vegar rannsóknir tengdar ferðaþjónustu. Á Norðurlandi vestra er einmitt nokkuð um að í uppbyggingu séu setur sem ætlað er að sinna bæði ferðaþjónustu og rannsóknum innan afmarkaðra sérsviða.

rannsoknir

Á síðunum hér til hliðar er leitast við að skýra betur einstaka vísa að klösum, sem VNV hefur þegar komið að. Þess ber að geta að einstök verkefni geta hæglega tengst fleiri en einu áherslusviði og flokkun sem þessi getur því aldrei verið endanleg.

Þá er og rétt að minna á, að þó Vaxtarsamningi Norðurlands vestra sé ætlað að leggja áherslu á ofangreind svið, getur stjórn hans ákveðið að styðja við önnur verkefni ef svo ber undir og hún telur þau falla að yfirmarkmiði hans - að efla atvinnulíf á Norðurlandi vestra með því að byggja á styrkleikum svæðisins.

Öll verkefni studd af Vaxtarsamningi Norðurlands vestra uppfylla það ákvæði samningsins að um samstarf að lágmarki tveggja aðila sé að ræða.

Yfirlit um styrkveitingar er að finna í skjalasafni okkar, hér.